Laugardagur 31.07.2010 - 17:11 - Ummæli ()

Bið eftir hæstaréttardómara – jafnréttiskröfur seinkuðu skipan nefndar

Eru lögmenn ábyrgir fyrir tjóni vegna gengistryggðu lánanna?

Nýr hæstaréttardómari átti að vera skipaður á morgun, 1. ágúst, en útlit er fyrir að nokkura vikna töf verði á því, þar sem verulega dróst að skipa nefnd til að meta hæfi umsækjenda. Það dróst nokkuð að skipa hæfisnefndina þar sem aðeins ein kona var tilnefnd í hana – stjórnvöld vildu jafna kynjahlutfallið en það gekk ekki eftir.

Samkvæmt RÚV er talið ólíklegt að nýr hæstaréttardómari verði skipaður fyrr en að nokkrum vikum liðnum þó skipa hafi átt dómara frá og með 1. ágúst. Umsóknarfrestur rann út um miðjan júní en fjögur sóttu um embættið. Það eru Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari, Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómari, Viðar Már Matthíasson, settur hæstaréttardómari, og Þorgeir Örlygsson, dómari við EFTA-dómstólinn í Lúxemborg. Hæfisnefndin, sem meta skal hæfi umsækjendanna fjögurra, tók til starfa fyrir nokkrum dögum en umsækjendurnir eiga kost á að gera athugasemdir við hæfi nefndarmanna auk þess sem þeir geta komið að frekari gögnum til nefndarinnar. Brynjar Níelsson, fulltrúi Lögmannafélagsins í nefndinni, segir í RÚV að þetta geti tekið nokkrar vikur.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is