Cheney vill að íslensk stjórnvöld loki WikiLeaks – Myndband

Liz Cheney vill að íslensk stjórnvöld verði fengin til að loka vefsíðunni WikiLeaks. Þó kom ekki fram í viðtalinu hvernig stjórnvöld á Íslandi gætu skipt sér af síðunni.
Liz Cheney, dóttir Dick Cheney fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna og áhrifakona í Repúblikanaflokknum, vill að íslensk stjórnvöld loki vefsíðunni WikiLeaks. Þetta sagði hún í spjallþætti á fréttastöðinni Fox News í gær. Hún var þó ekki spurð að því hvernig eða hvers vegna íslensk stjórnvöld ættu að hlutast til um lokun WikiLeaks.
Cheney hefur ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Repúblikanaflokkinn og hefur m.a. stofnað samtökin Keep America Safe. Í þættinum gagnrýndi hún harkalega birtingu leyniskjala Bandaríkjahers um stríðið í Afganistan á WikiLeaks. Hún sagði Julian Assange, ritstjóra WikiLeaks, greinilega reyna að hafa áhrif á stefnu Bandaríkjanna í Afganistan, en honum yrði ekki kápan úr því klæðinu.
„Hendur hans eru blóði drifnar vegna birtingu gagna um fjölda fólks og uppljóstrara fyrir Bandaríkjastjórn og hann verður að lifa með það á samviskunni,“ sagði hún um Assange.
Þá vill hún að vefsíðunni WikiLeaks verði lokað, með aðstoð íslenskra stjórnvalda eða ekki.
„Ég vil að Obama forseti biðji íslensk stjórnvöld um að loka þessari vefsíðu. Þá vil ég að hann sjái til þess að við lokum henni sjálf, ef Íslendingar gera það ekki. Auk þess vil ég að hann beiti Assange hörku, lögsæki hann og tryggi að hann fái aldrei aftur vegabréfsáritun til Bandaríkjanna. Með aðgerðum sínum styður hann greinilega við bakið á al-Qaeda og gæti vel verið ábyrgur fyrir dauða bandarískra hermanna í Afganistan,“ sagði Cheney.
Brot úr viðtalsþætti Fox má sjá hér:
[youtube=youtube.com/watch?v=3EbYeP9qaGs]
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is