Meirihluti þingmanna andvígur endurfjármögnun banka vegna gengislána
Meirihluti þingmanna á Alþingi Íslendinga er andvígur því að ríkissjóður komi bönkunum aftur til bjargar með auknu fjármagni, verði þess þörf vegna ólögmæti gengistryggingar lána. Þetta hefur Bloomberg fréttaveitan eftir þremur stjórnarandstöðuleiðtogum og þremur stjórnarþingmönnum.
Samkvæmt athugun Bloomberg eru að minnsta kosti 34 þingmenn af 63 mótfallnir því að frekara fjármagn verði veitt til bankanna. Þetta er öll stjórnarandstaðan auk Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur, Lilju Mósesdóttur og Ögmundar Jónassonar úr Vinstri grænum.
Enn liggur ekki fyrir hvort ríkisvaldið þarf að leggja bönkunum til aukið eigið fé vegna gengistryggðu lánanna né í hve miklum mæli. Engu að síður fór Bloomberg á stúfana og kannaði hug forsvarsmanna stjórnarandstöðuflokkanna þriggja, auk fyrrnefndra þriggja þingmanna VG. Ríkisstjórnin getur ekki aukið við eigið fé bankanna nema með samþykki Alþingis.
„Ég myndi ekki styðja endurfjármögnun,“ segir Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna við Bloomberg. „Nægu fjármagni hefur þegar verið dælt í bankana og bankakerfið er alltof stórt.“
Þá er haft eftir Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, að „ríkisstjórnin verði að gera allt til að forðast endurfjármögnun bankanna.“
Margrét Tryggvadóttir, Hreyfingunni, segir í fréttinni „óverjandi að hagnaður renni alltaf til einkafyrirtækja, en verði tap þurfa skattgreiðendur að borga.“
Hagfræðingur: Yrði jákvætt að straumlínulaga kerfið
Þá er rætt við Gísla Hauksson, hagfræðing hjá GAM Management hf., sem líkir ástandinu við sumarið 2008 þegar taka þurfti stórar ákvarðanir á þeim tíma þegar stjórnsýslan og Alþingi voru í sumarfríi. Hann telur aðstæður þó ekki alslæmar, því án frekara fjármagns í bankakerfið geti verið nauðsynlegt fyrir ríkisvaldið að þvinga Arion banka og Íslandsbanka til að sameinast.
„Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur sagt bankakerfið of stórt, svo þetta gæti orðið skrefið sem þarf til að straumlínulaga kerfið,“ segir hann.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is