HEILSA: Ungir netfíklar líklegri til að þjást af þunglyndi
Unglingar sem eyða umtalsverðum tíma á netinu eru einu og hálfu sinni líklegri til að þjást af alvarlegu þunglyndi en þeir unglingar sem nota netið í hófi.
Þetta eru niðurstöður alþjóðlegrar rannsóknar sem fór fram í Kína.
Lawrence Lam, sem fór fyrir rannsókninni, segir þá unglinga sem eyða 5-10 klukkustundum, eða meira, á netinu dag hvern, verða eirðarlausa og áhugalausa séu þeir of lengi frá netinu í senn. Þeir missa jafnframt áhuga á vinum og félagslífi.
„Sumir eyða tíu tímum við tölvuleiki eða netnotkun á dag og í kjölfarið koma fram einkenni fíknar,“ segir Lam sem birti grein um rannsóknina í tímariti sem sérhæfir sig í geðheilsumálum ungmenna (Archives of Pediatrics & Adolescent Medicine).
Þá langar ekki til að hitta vini sína, taka þátt í lífinu með fjölskyldum sínum eða hitta foreldra og systkini.
Rúmlega eittþúsund unglingar tóku þátt í rannsókninni en þau voru á aldrinum 13-18 ára. Ekkert þeirra greindist með þunglyndis eða fíknareinkenni áður en rannsóknin hófst. Að henni lokinni voru hinsvegar 84 greind þunglynd og þau sem notuðu netið óhóflega voru einu og hálfu sinni viðkvæmari fyrir þunglyndi en þau sem notuðu netið í hófi.
Niðurstaðan sýndi að ungt fólk sem er nokkurnvegin laust við þunglyndi eða depurð getur þróað þessi einkenni með sér, noti þau netið og tölvuleiki í óhóflegu magni. Þunglyndið getur líka orsakast af svefnleysi sem kemur í kjölfar netnotkunarinnar.
Fólk sem dvelur svo lengi á netinu missir svefn og það er vel þekkt að því minna sem fólk sem fólk sefur, því meiri eru líkurnar á þunglyndi.
Lam segir þetta fyrstu rannsókn sinnar tegundar þar sem tengsl á milli netnotkunar og þunglyndis eru greind.
Áður hafi verið litið á hvort þunglyndi leiði til netnotkunar en ekki öfugt.
Frá þessu segir breska blaðið The Independent
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
