Jón Ásgeir segist engu hafa skotið undan. Lárus bar ábyrgð á Glitni
Jón Ásgeir Jóhannesson segist vera að selja eignir hér heima og erlendis til að eiga fyrir vörn sinni vegna málssóknar slitastjórnar Glitnis í New York. Hann segir það af og frá að milljarða króna sé að finna í skattaskjólum og býður skattayfirvöldum að leita af sér allan grun.
„Ég myndi geta gefið skattayfirvöldum umboð til að leita alls staðar í heiminum að fjármunum í mínu nafni og ég veit alveg hver niðurstaðan er,“ sagði Jón Ásgeir í kvöldfréttum RÚV.
Jón Ásgeir gaf upp eignir að verðmæti rúmlega 200 milljónir króna þegar slitastjórn Glitnis fór fram á og fékk alþjóðlega kyrrsetningu á eignum hans fyrir dómi í Lundúnum.
„Það eru ekki neinir milljarðar í einhverjum aflandseyjum einsog verið að tala um,“ segir Jón Ásgeir um þann orðróm.
Slitastjórnin hefur gefið Jóni Ásgeiri leyfi til að selja eignir fyrir lögfræðikostnaði.
„Það eru eignir sem hafa verið seldar og svo aðrar sem eru í söluferli,“ segir hann.
Slitastjórnin krefur Jón Ásgeir og fleiri um háar bætur fyrir að hafa svikið fé út úr Glitni, í máli sem er fyrir rétti í New York. Þar aflaði bankinn sér milljarða dala með skuldbréfaútboði. Jón Ásgeir krefst þess að málinu verði vísað frá þar sem það eigi ekki heima vestan hafs.
„Það er alveg á tæru að það er ekkert samhengi þarna á milli, að Glitinr hafi verið að selja skuldabréf og þá sé hægt að fara á eftir okkur. Þetta er mál sem snýst um íslensk lög, gegn Íslendingum.
Í stefnunni í málinu í New York heldur slitastjórnin því fram að Jón Ásgeir hafi í raun stýrt Glitni og sagt forstjóranum Lárusi Welding fyrir verkum. Jón Ásgeir segir það af og frá. Spurður um ummæli Lárusar um að Jón Ásgeir hafi umgengist hann sem útibússtjóra en ekki bankastjóra sagði Jón Ásgeir:
„Hann verður að skýra þau orð. En þar er alveg klárt að Lárus var bankastjóri Gltitnis og bar ábyrgð á þeim banka.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
