Miðvikudagur 04.08.2010 - 12:00
- Ummæli
()
Undirbúningur stjórn- lagaþings á fullt. Framkvæmdastjóri ráðinn

Stjórnlagaþing verður sett í febrúar á næsta ári
Þorsteinn Fr. Sigurðsson, rekstrarhagfræðingur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri undirbúningsnefndar stjórnlagaþings en þingið skal koma saman í febrúar á næsta ári. Þorsteinn hefur þegar hafið störf.
Morgunblaðið gerir grein fyrir þessu en undirbúningsnefnd hefur starfað um tíma að undirbúningi þessum en fyrir utan þingið sjálft þann 15. febrúar 2011 skal áður halda þjóðfund sem verður hluti af undirbúningi fyrir stjórnlagaþingið sjálft.
Framkvæmdastjórinn starfar í umboði nefndarinnar en nefndin skal undirbúa kynningu á starfssemi stjórnlagaþingsins, setja upp vef þess tengdu og ráða starfsmenn þegar þar að kemur.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is