Fimmtudagur 05.08.2010 - 12:40 - Ummæli ()

Hannes Smárason óttast um öryggi sitt og eigur. Setur upp mikið myndavélakerfi

Var um sig hann Hannes Smárason

Húsið og lóðin að Fjölnisvegi 11, eign Hannesar Smárasonar, eru nú vöktuð í þaula eftir að Hannes lét setja þar upp mikið kerfi eftirlitsmyndavéla til öryggis. Nokkrum sinnum hefur málningu verið slett á þessa eign hans auk þess sem lögregla hefur farið þar inn til húsleitar.

DV fjallar um þetta en lítið sem ekkert hefur farið fyrir þessum fyrrum útrásarhetju landsins sem um tíma var hælt í öllum blöðum og tímaritum.

Þá hefur DV ennfremur gert það að umfjöllunarefni að Hannes hafi enn umráðarétt yfir eigninni að Fjölnisvegi 11 þó svo að Landsbankinn hafi tekið það yfir. Þar hefur dvalist undanfarið eiginkona eins vinar og viðskiptafélaga Hannesar, Magnúsar Ármanns.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is