Sakar heilbrigðis- ráðherra um að stuðla að veikindum fólks með stefnu sinni

Heilbrigðisráðherra sem veldur sjúkdómum?
Heilbrigðisráðherra, Álfheiður Ingadóttir, stuðlar beint að veikindum fólks með stefnu sinni í málefnum heimilislækna samkvæmt mati Birnu Jónsdóttur, formanns Læknafélags Íslands.
Þar vísar Birna til þeirrar óvissu sem hún telur ráðherra skapa með þeirri óvissu sem uppsögn á samningum við sjálfstætt starfandi lækna hefur skapað að hennar mati. Rennur samningur Sjúkratrygginga við Læknavaktina og sjálfstætt starfandi lækna út um næstu áramót en þeir læknar eingöngu sinna 22 þúsund sjúklingum.
Segir Birna við fréttastofu RÚV að óvissan sé mjög slæm og ekki síður varhugavert að fram hafi komið að vilji ráðherrans standi til að samningar renni út. Sú stefna geti beinlínis valdið sjúkdómum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is