Órólega deild VG að hugsa sér til hreyfings. Hreyfingin heillar marga

Fjölgar í Hreyfingunni á næstunni?
Heimildir Fréttablaðsins herma að viðræður eigi sér stað með þingmanna Hreyfingarinnar annars vegar og stöku þingmanna úr Vinstri grænum sem kenndir hafa verið við svokallaða órólegu deild flokksins. Er það mat stöku þingmanna þeirra síðarnefndu að þeir eigi nú meira sameiginlegt með Hreyfingunni en sínum eigin flokki.
Aðspurður játar Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, að samskipti hafi átt sér stað en segir þó ekki rætt um að skipt verði um flokk. Hann er þó fljótur til að bjóða alla þá velkomna í Hreyfinguna sem það vilja enda allir velkomnir. „Ef þau kæmu yfir til okkar er ekkert því til fyrirstöðu að ríkisstjórnin yrði enn við völd en menn myndu þá koma að ákveðnum sjónarmiðum. Ég hef lengi talað fyrir þjóðstjórn án Sjálfstæðisflokks.“
Segir Þór vissulega vita til þess að stöku þingmenn VG hafi fengið nóg af framkomu flokks síns í efnahags- og lýðræðismálum og að Steingrímur J. Sigfússon, formaður, sé orðinn ansi einangraður í flokki sínum. Mikil óánægja sé með framgöngu hans í mörgum málum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is