Föstudagur 06.08.2010 - 15:16 - Ummæli ()

Sean Penn (49): Loksins á lausu – tók ótal ár í að skilja

Sean Penn skildi við eiginkonu sína Robin Wright, 44, síðasta miðvikudag og þar með lauk langri og dramatískri sögu þeirra hjóna.


1989 – Kynntust þau Robin Wright og Sean Penn við tökur á kvikmyndinni State of Grace. Bæði voru nýskilinn og Sean hafði nýlokið stormasömu hjónabandi við Madonnu.

1991 – Parið eignast tvö börn, dótturina Dylan Frances Penn og soninn Hooper Jack Penn sem var skírður í höfuðið á vinum föður síns þeim Jack Nicholson og Dennis Hooper. Tvö ár voru á milli barnanna en foreldrarnir fóru í sundur við fæðingu þeirra beggja og tóku svo saman aftur.

1996 – Sean og Robin koma öllum á óvart og giftast fyrirvaralaust.

1997 – Nú hriktir í stoðum hjónabandsins. Penn er talin halda við söngkonuna Jewel og sagt er að hann hafi átt í sambandi við Kate Moss fyrstu sex árin sem hann var giftur Robin.

2004 – Sean fær óskarinn fyrir leik sinn í Mystic River og þakkar ekki eiginkonunni í ræðunni sinni. Hún lýsir hjónabandinu sem ‘himneskri kvöl’.

2007 – Parið byrjar skilnaðarferlið en tekur saman aftur eftir fjóra mánuði.

2009 – Wright fylgir Penn niður rauða dregilinn þegar hann hlýtur önnur óskarsverðlaun sín (Milk), hann biður um skilnað í apríl, þau eru aftur saman í maí en í ágúst gengur hún endanlega í málið og segist ekki sjá eftir neinu.

2010 – Í nýlegu viðtali sagði Sean Penn að konan fyrrverandi væri eins og draugur í huga sér í dag og hann mun vera komin í samband við fyrirsætuna Jessica White.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is