SP Fjármögnun meinar lántakendum að fara með bíla sína úr landi

Bílar með áhvílandi bílalánum fara ekki úr landi
Þeir aðilar sem tekið hafa bílalán hjá SP Fjármögnun og hafa ekki klárað að greiða sitt geta vænst þess að verða stöðvaðir ætli þeir með bílinn úr landi hvort sem er til sumarleyfa eða annars. Óheimilt er með öllu að fara með bíla í eigu fyrirtækisins úr landi.
Segir framkvæmdastjóri þess við Morgunblaðið að um eðlilega ráðstöfun sé að ræða og þetta gildi hvort sem um hallæri eða góðæri sé að ræða. Um tryggingamál sé að ræða og sé bíl stolið erlendis meðan fjölskylda sé í sumarfríi tekur trygging til að mynda ekki til þess.
Fólk þarf því að koma með sérstaka tryggingu fyrir andvirði bílsins ef taka skal gripinn úr landi hvort sem er til styttri tíma eða langtíma. Þó nokkrir aðilar hafa verið stöðvaðir á leið í ferjuna Norrænu vegna þessa og snúið við.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is