Viðskipti Fimmtudagur 12.08.2010 - 09:33 - Ummæli ()

Ríkið mögulega skaðabótaskylt ef vitneskja var um ólögmæti gengislána

Skaðabótakrafa gæti myndast á hendur ríkinu

Íslenska ríkið gæti hafa skapað sér skaðabótaskyldu komi í ljós að stjórnvöld vissu um ólögmæti gengistryggðra lána áður en Hæstiréttur komst að þeirra skoðun. Er þar sérstaklega vísað til Gylfa Magnússonar sem vill alls ekki kannast við vitneskju um slíkt þó ýmislegt beri að þeim brunni.

Formaður skilanefndar Glitnis, Árni Tómasson, telur ekki útilokað að skaðabótakrafa hafi myndast sé hægt að sanna að menn hafi vitað meira en látið var uppi. Telur hann mögulegt að láta á það reyna í samtali við Morgunblaðið en þó sé það skilyrði að Hæstiréttur snúi við héraðsdómi um leiðréttingu vaxtakjara gengistryggðra lána.

„Það skiptir meira máli hvort úrskurður héraðsdóms verður staðfestur eða ekki. Mér finnst þó nokkuð líklegt, ef honum verður snúið við, að þetta hafi miklu meiri áhrif á allt saman. Ég hef nú verið talsmaður þess að hætta, eins og kostur er, að líta í baksýnisspegilinn og reyna að einbeita okkur að byggja þetta upp hjá okkur. Ég get hins vegar ekki litið framhjá þeim gríðarlegu áhrifum ef vaxtaþættinum verður snúið við. Þá gjörbreytist þetta og þá má segja að forsendur séu verulega breyttar. Hins vegar vildi ég mælast til þess að ef þetta fer eins og dómar líta út núna að þá reyni menn að einbeita sér með jákvæðum hætti að því að gera sem best úr stöðunni.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is