Fimmtudagur 12.08.2010 - 11:43 - Ummæli ()

Tæplega tvö þúsund á dag til og frá Vestmannaeyjum síðustu vikur

Vaxandi vinsældir Vestmannaeyja enda nú um skemmri leið að fara

Rétt tæplega 40 þúsund manns hafa nú þegar ferðast til og frá Vestmannaeyjum eftir að ferjan Herjólfur fór að sigla til Landeyjahafnar og er það umtalsvert umfram meðaltal. Leggja nú töluvert margir í dagsferðir til eyjarinnar enda öllu fljótari í ferðum nú en áður.

Eru heimamenn í Eyjum himinlifandi yfir málum jafnvel þó inni í þessum tölum sé fjöldi fólks sem leið sína lagði á þjóðhátíð um Verslunarmannahelgina. Þýðir fjöldinn um 1900 manns hvern einasta dag síðan siglingar hófust frá Landeyjahöfn þann 21. júlí síðastliðinn.

Segir Kristín Jóhannsdóttir, menningar og markaðsfulltrúi Vestmannaeyja, við Morgunblaðið að hún viti til að fólk komi af meginlandinu til þess eins að fara í sund en glæný sundlaug er til staðar í eynni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is