Slökkviliðsmenn koma í veg fyrir flug. Tugir farþega komast ekki leiðar sinnar
Slökkviliðsmenn lokuðu hliðum að flugbraut Flugfélags Íslands á Reykjavíkurflugvelli í dag og komu í veg fyrir að flogið yrði til Húsavíkur. Nær sextíu manns áttu flug til Akureyrar um Húsavíkurflugvöll, en urðu að frá að hverfa vegna aðgerðanna.
Fundi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna með samninganefnd sveitarfélaga lauk klukkan sex í morgun án sátta. Því hófst 16 klukkustunda langt verkfall í morgun ásamt boðuðum mótmælaaðgerðum.
Ólafur Ingi Grettisson, slökkviliðsmaður, segir þessar aðgerðir ekki eiga að hafa komið á óvart. Þeir hafi boðað þessar aðgerðir fyrir löngu og því legið fyrir alla vikuna að þessar flugvélar gætu ekki farið í loftið.
Slökkviliðsmenn lokuðu líka veginum að flugvellinum við Húsavík, en í raun þurfti þess ekki þar sem flugið frá Reykajvík féll niður. Þeir telja ekkert annað en verkfallsbrot að beina áætlunarflugi til Akureyrar um Húsavíkurflugvöll.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is