Mánudagur 16.08.2010 - 07:33 - Ummæli ()

Vill veita lögreglu víðtækar heimildir til rannsóknar á einstaklingum

Dómsmálaráðherra vill veita víðtækar heimildir

Lögreglan mun fá mjög víðtækar heimildir til að rannsaka einstaklinga án þess að grunur leiki á að þeir hafi framið eða ætli að fremja ákveðið brot nái hugmyndir Rögnu Árnadóttur, dóms- og mannréttindamálaráðherra, fram að ganga.

Hyggst hún fela nefnd að undir­búa tillögur um slíkar forvirkar rannsóknaraðferðir fyrir lögreglu, en viðurkennir að slíkar heimildir séu umdeildar.

Segir Ragna við Fréttablaðið að sjálf hafi hún vissar áhyggjur af auknum heimildum til handa lögreglu. „Sjálf hef ég til þessa verið mikil efasemda­manneskja og talið að það ætti fremur að halda að sér höndum í þessum efnum heldur en hitt. En eftir að hafa fengið ákveðnar greiningar, upplýsingar og gögn, meðal annars um skipulagða glæpastarfsemi hér á landi, tel ég mér ekki stætt á öðru en að bregðast við.“

Segir hún slíkum rannsóknarheimildum verði að fylgja skýrt eftirlit. Hún sér fyrir sér að það verði í höndum þingnefndar eða sérstakrar deildar innan dómstóls. Þá segist hún jafnframt vera að skoða hvort ekki þurfi að koma á formlegu innra eftirliti hjá lögreglu. Í dag metur ríkissaksóknari hvort lögregla hafi misbeitt valdi sínu, og sérstakt eftirlit er innan lögreglu höfuðborgarsvæðisins.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is