Guðlaugur Þór gefur stjórnvöldum ráð. Forgangsmál að greiða niður skuldir

Guðlaugur vill að stjórnvöld beiti kröftum til að grynnka á skuldum
Brýnt er að stöðva skuldasöfnun ríkisins og greiða niður skuldir og það verður ekki gert með öðru en vönduðum vinnubrögðum við endurskipulagningu. Að sama skapi er nauðsynlegt að halda uppi þjónustu á sem flestum sviðum.
Þetta er þema stutts pistils sem þingmaðurinn Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar í Morgunblaðið í dag en þar hefur þingmaðurinn þungar áhyggjur af miklum vaxtagjöldum ríkissjóðs. Bendir hann á að ein króna af hverjum fimm sem ríkið fær fer beint til greiðslu vaxtagjalda. Það gangi ekki til lengdar og tekur Guðlaugur dæmi um hvað hægt væri að gera fyrir þá hundrað milljarða sem ráð er fyrir gert að ríkið greiði í vaxtagjöld á árinu.
- Greiða rekstrarkostnað Landspítalans í þrjú ár og forsætisráðuneytið í eitt ár fyrir afganginn.
- Greiða rekstrarkostnað við Háskóla Íslands í tíu ár og Menntaskólann á Akureyri í fjögur ár fyrir afganginn.
- Greiða rekstrarkostnað við Spítalann á Akureyri í 25 ár
- Greiða rekstarkostnað við Háskóla Reykjavíkur í 50 ár
- Greiða rekstarkostnað við Verkmenntaskólann á Akureyri í 100 ár.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is