Móðir fór á fyllerí og skildi 11 ára dóttur sína eftir á fjölmennri strönd
Bresk móðir hefur verið dæmd í sex mánaða fangelsi fyrir að vanrækja dóttur sína.
Móðirin, sem heitir Alicia Bernadette Jenkins og er 42 ára, fór með ellefu ára dóttur sinni í frí til Spánar þar sem þær dvöldu á þriggja stjörnu hóteli í bænum Salou sem er rétt utan við Barcelona.
Á sunnudagskvöld skildi hún barnið eftir á fjölmennri strönd meðan hún sat sjálf við drykkju á bar í grenndinni.
Það voru bresk hjón sem fundu stúlkuna ráfandi um ströndina. Þegar þau fóru með hana til móður sinnar sagði hún þeim að hundskast burt. Hún var mjög ölvuð.
Hjónin fóru með stelpuna á hótelið þar sem þær mæðgur dvöldust og þar hringdi starfsfólkið á lögreglu. Móðirin var í kjölfarið handtekinn og ákærð fyrir vanrækslu á barninu.
Stúlkan dvelur nú á barnaheimili á Spáni.
Samkvæmt spænskum lögum geta foreldrar fengið allt að 18 mánaða til þriggja ára dóma fyrir að vanrækja börn sín. Ef börnin verða fyrir hættu getur dómurinn verið allt að fjögur ár.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
