Morðið á Hannesi Þór. Nokkrir einstaklingar með réttarstöðu grunaðra

Vettvangur morðsins á Hannesi
Nokkrir einstaklingar eru með réttarstöðu grunaðra vegna morðsins á Hannesi Þór Helgasyni aðfararnótt sunnudagsins en ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir neinum þeirra. Morðvopnið hefur enn ekki fundist.
Morgunblaðið segir frá þessari stöðu en alls munu um 40 lögreglumenn koma að rannsókninni.
Var grunaður maður í haldi í tæpan sólarhring en var sá látinn laus seinnipartinn í gær eftir yfirheyrslur. Neitar sá allri aðild en er áfram í hópi grunaðra.
Lögmaður þess einstaklings gagnrýnir harkalega fréttaflutning af málinu en nafn mannsins var birt meðan hann var í haldi ásamt mynd af viðkomandi. Gleymdist þar að hafa í heiðri að allir eru saklausir uns sekt sannast. Ekki er útilokað að höfðað verði skaðabótamál vegna mynd- og nafnbirtingarinnar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is