Miðvikudagur 18.08.2010 - 08:36 - Ummæli ()

Óvíst hvað verður um Vífilstaði. Síðustu vistmennirnir flytja þaðan brott

Sögufrægt hús mun standa tómt í vikulokin

Alls óvíst er hvað verður um Vífilsstaði í Garðabæ en í vikulokin ættu allir vistmenn þar að vera fluttir í nýtt og betra húsnæði dvalarheimilis Hrafnistu við Suðurlandsbraut í Reykjavík. Eftir stendur þá hið sögufræga hús tómt en ekkert liggur fyrir um hvort starfsemi verður þar í einhverri mynd. Til álita hefur komið að opna þar farfuglaheimili eða golfhótel.

Fóru fyrstu vistmenn Hrafnistu frá Vífilstöðum og Víðinesi í glæný húsakynni við Suðurlandsbrautina í byrjun vikunnar samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins en þar fer ívið betur um fólkið. Fá til dæmis flestir sem vilja einstaklingsherbergi og þurfa ekki að deila herbergi með öðrum eins og verið hefur raunin undanfarin ár.

Að þeim flutningum loknum standa Vífilstaðir eftir lokaðir og læstir. Ríkið á allar byggingar að Vífilstöðum en Garðabær á landið. Óvíst er hvort Landsspítalinn sem hefur verið umsjónaraðili staðarins hyggst nýta hann áfram.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is