Stórar aðgerðir í fjárlögum næsta árs. Vinda þarf ofan af miklum halla

Tíðindi framundan í nýju fjárlagafrumvarpi
Vænta má stórra ákvarðanna og aðgerða í fjárlögum ríkisins fyrir næsta ár en vinna við ný fjárlög er langt komin og gengur vel. Skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu sem um stórar aðgerðir að ræða þar enda sé þörfin brýn að grynnka á miklum hallarekstri.
Morgunblaðið fjallar um komandi fjárlög en lítið sem ekkert er gefið upp um innihaldið enn sem komið er. Nökkvi Bragason, skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu, segir gert ráð fyrir minni halla en á fjárlögum 2010 og að svonefndur frumhalli ríkissjóðs verði orðinn jákvæður. Í frumhallanum felast útgjöld og tekjur að undanskildum vaxtajöfnuði en hann hefur verið mjög óhagstæður. Er þetta í samræmi við samstarfsáætlun við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Vill Nökkvi ekki tjá sig frekar um fjárlögin enda eigi eftir að leggja þau fyrir Alþingi en það verður gert þegar þingið tekur til starfa í október.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is