Ný styrkjamál fyrir stjórnlagaþing? Frambjóðendur mega þiggja 2 milljónir

Alþingi samþykkti að leyfa frambjóðendum að verja tveimur milljónum króna í kynningu og kosningabaráttu. Gagnrýnt er hve há fjárhæðin er, hvort sem hún kemur úr vasa frambjóðanda eða með styrkjum.
Frambjóðendur til stjórnlagaþings mega þiggja allt að tvær milljónir króna í styrki fyrir kosningar til stjórnlagaþings í nóvember á þessu ári. Enda þótt það séu ekki háir styrkir í samanburði við mestu ofurstyrki áranna 2006-2007 vekur þessi heimild nokkra athygli, í ljósi umræðu og gagnrýni á háa styrki til frambjóðenda fyrir hrun.
Samkvæmt lögum um stjórnlagaþing, sem samþykkt voru frá Alþingi fyrr í sumar, skal skila inn framboði í hendur landskjörstjórnar ekki síðar en fjörutíu dögum fyrir kjördag, eða 18. október. Með framboði skal fylgja samþykki frambjóðanda og nöfn minnst 30 og mest 50 meðmælenda, ásamt skriflegri yfirlýsingu frá hverjum meðmælanda sem staðfest hefur verið af tveimur vottum. Hverjum kosningarbærum manni er einungis heimilt að mæla með einum frambjóðanda.
Síðan segir: „Kostnaður hvers frambjóðanda vegna kosningabaráttu má að hámarki nema 2 millj. kr.“
Styrkir til frambjóðenda voru harkalega gagnrýndir í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis vegna bankahrunsins. Þar sagði m.a. : „Það er alvarlegt mál í lýðræðisríki þegar almannaþjónar mynda fjárhagsleg tengsl með þessum hætti við fjármálafyrirtæki.“
Með þetta í huga vekur nokkra athygli að lög um stjórnlagaþing skuli leyfa kostnað við framboð hvers frambjóðanda upp að tveimur milljónum króna.
Vissulega er mögulegt að einhverjir frambjóðendur ætli ekki að þiggja neina styrki heldur standa straum að sinni kynningu úr eigin vasa. Um leið er það mörgum umhugsunarefni hverjir hafi fjárráð til þess, því stjórnlagaþingið á að vera stutt – tveir mánuðir – og því munu laun fyrir setu á því aldrei hrökkva að tveimur milljónum króna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is