Viðskipti Fimmtudagur 19.08.2010 - 15:04 - Ummæli ()

Ný vinnubrögð í borgarstjórn: Öll dýrin í skóginum skulu vera vinir

Borgarráð samþykkti einróma tillögu Hönnu Birnu um nánari samvinnu borgarfulltrúa allra flokka.

Borgarráð samþykkti í dag einróma tillögu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, forseta borgarstjórnar, að framvegis skuli stuðlað að aukinni samvinnu og reglulegum vinnufundum allra borgarfullrúa.

Hingað til hefur meirihlutinn í borgarstjórn haldið slíku fyrir sig og minnihlutinn gert hið sama eftir atvikum. Tillaga Hönnu Birnu var svohljóðandi:

„Lagt er til að borgarráð samþykki þá nýbreytni að sameiginlegir vinnufundir allra borgarfulltrúa verði fastur liður í starfsáætlun borgarstjórnar Reykjavíkur.  Vinnufundirnir skulu að jafnaði haldnir mánaðarlega og hafa það að markmiði að auka samstarf borgarstjórnar allrar um stefnumótun og brýn verkefni borgarbúa.  Forsætisnefnd boðar til fundanna og undirbýr dagskrá í samstarfi við borgarstjóra, en fyrsti sameiginlegi vinnufundur nýrrar borgarstjórnar skal haldinn áður en borgarstjórn kemur aftur saman í byrjun september.“

Hanna Birna segir að tilgangur tillögunnar sé fyrst og síðast að bæta störf borgarstjórnar og tryggja góðar lausnir fyrir borgarbúa.

,,Á seinni hluta síðasta kjörtímabils voru stigin mikilvæg skref í átt til aukinnar samvinnu allrar borgarstjórnar, þvert á flokka og þvert á meirihluta og minnihluta.  Sú skoðun okkar að slík vinnubrögð skili mestum árangri fyrir borgarbúa hefur ekkert breyst, þrátt fyrir að staða okkar sé breytt.  Við viljum leggja okkar að mörkum til að gera góða borg enn betri og því var þessi tillaga um ný vinnubrögð í borgarstjórn lögð fram og við fögnum þeim góðu undirtektum sem hún hlaut.”  segir Hanna Birna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is