Viðskipti Þriðjudagur 24.08.2010 - 20:18 - Ummæli ()

40 milljarða gati verður lokað með 30 milljarða niðurskurði og 10 milljarða sköttum

Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir fara yfir stöðuna með fréttamönnum í dag.

Loka þarf 40 milljarða fjárlagagati í fjárlögum næsta árs. Verður það gert með 30 milljarða niðurskurði í ríkiskerfinu auk þess sem skattar verða hækkaðir um 10 milljarða, samkvæmt fjárlagafrumvarpi sem nú er í lokssmíðum.

Undirbúningur fjárlaga var helsta efni ríkisstjórnarfundarins í morgun, þó að ummæli Jóns Bjarnasonar um aðildarviðræður við ESB hafi yfirskyggt umræðu á fréttamannafundi að loknum fundi.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að samstaða sé um aðgerðir í fjárlögum á milli stjórnarflokkanna. Með þessu verði síðasti erfiði hjallinn stiginn í því að loka hinu risavaxna fjárlagagati sem myndaðist í efnahagshruninu 2008, en þá varð  halli á ríkissjóði vel á þriðja hundrað milljarða króna.

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að gangi þetta eftir geti ríkissjóður byrjað aftur að greiða niður skuldir á næsta ári. Steingrímur ítrekar að skattahækkanir verði miklu lægri en í fyrra, eða fjórðungur af 40 milljarða fjárlagagati. Þess í stað verði bróðurparturinn, 30 milljarðar, fenginn með niðurskurði í stjórnsýslunni. Þar verður niðurskurður á bilinu 5 til 10 prósent, minnstur í löggæslu og velferðarmálum, en mestur í almennum stofnunum og stjórnsýslu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is