Viðskipti Þriðjudagur 24.08.2010 - 08:32 - Ummæli ()

Segja Gylfa Magnússon einhliða fulltrúa fjármálafyrirtækja í ríkisstjórn

Gylfi þykir ekki traustsins verður

Hagsmunasamtök heimilanna telja sannað eftir ítarlega skoðun á ummælum Gylfa Magnússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, á fundum og í fjölmiðlum að hann gangi erinda fárra fjármálafyrirtækja í ríkisstjórn. Hann sé því ótrúverðugur ráðherra.

Þetta kemur fram á heimasíðu samtakanna en þar á bæ hafa menn legið yfir ummælum ráðherrans varðandi gengistryggð lán og telja fráleitt annað en Gylfa hafi verið fullkunnugt um tvö álit Seðlabankans um málið sem bárust ráðuneyti hans í maí 2009.

Hann [Gylfi] talar þeirra máli í einu og öllu án tillits til hagsmuna annarra þátttakenda í efnahagslífinu, svo sem eins og heimilanna og rekstrarfyrirtækja. Þetta endurspeglast mjög skýrt í framgöngu og ummælum Gylfa er varðar gengistryggðu lánin. Þar hefur hann gengið svo langt að hylma yfir með lögbrotum fjármálafyrirtækja, því þó svo að vafi hafi verið um það hvaða lán töldust í andstöðu við bókstaf laganna, þá voru öll lögfræðiálitin/minnisblöðin sammála um að gengistrygging væri ólögleg. Gylfa Magnússyni, efnahags- og viðskiptaráðherra, bar því skylda til að vekja athygli lögreglu og saksóknara á lögbrotunum jafnframt því að svara fyrirspurnum Alþingismanna undanbragðalaust.

Mat Hagsmunasamtaka heimilanna er að Gylfi Magnússon sé ótrúverðugur sem ráðherra efnahags- og viðskiptamála. Verði ráðherranum vikið, sjá samtökin kosti þess að fengin verði til starfans aðili sem gætir meira jafnvægis í viðhorfi sínu til aðila efnahagslífsins sem og í ráðgjöf til ríkisstjórnarinnar, svo ekki sé minnst á ábyrg svör til Alþingis.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is