Kirkjuráðsmaður biður konur að fyrirgefa kirkjunni og þjóðina afsökunar
Séra Halldór Gunnarsson, prestur og kirkjuráðsmaður, biður þjóðina og konurnar, sem borið hafa sakir á Ólaf Skúlason, afsökunar „gagnvart því, hvernig það gat gerst að Ólafur Skúlason var kjörinn biskup.“
Þetta segir Halldór í grein í Morgunblaðinu í dag undir yfirskriftinni „Afsökunarbeiðni“.
„Frásögn Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur á Kirkjuráðsfundi 17. ágúst s.l., sem ég trúi að sé sönn gagnvart hræðilegri reynslu hennar, kallar á afsökunarbeiðni gagnvart því, hvernig það gat gerst að Ólafur Skúlason var kjörinn biskup.“
Halldór rekur í greininni hvernig málin sem upp komu gegn Ólafi fyrir 15 árum hafi leitt til þess að sérstakt ákvæði um úrskurðar- og áfrýjunarnefnd var sett í þjóðkirkjulögin sem tóku gildi 1998. Ákvæðið varðar siðferðis- eða agabrot starfsmanna kirkjunnar og segir Halldór að samsvarandi ákvæði sé ekki að finna hjá neinni kirkjudeild í heiminum.
Þá hafi í framhaldi verið settar starfsreglur um meðferð kynferðisbrota innan íslensku þjóðkirkjunnar og fagráð stofnað til stuðnings þeim sem brotið væri gegn, en að slíkt fagráð þekkist ekki innan annarra kirkjudeilda.
Þá biður Halldór að kirkjunni verði gefið tækifæri til að vinna til trausts á ný.
„Sem einn af forystumönnum kirkjunnar bið ég þær konur, sem þjást vegna þessa, að fyrirgefa íslensku kirkjunni. Ég bið þjóð mína afsökunar og bið einnig að kirkjunni sé gefið tækifæri til að takast á við daginn í dag og dagana sem framundan eru, til að vinna til traustst á ný, þannig að ekki verði aðskilnaður milli þjóðar og kirkju.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is