Föstudagur 27.08.2010 - 16:00 - Ummæli ()

Britney Spears og 16 árum eldri kærastinn í topp formi á Hawai

Britney Spears virðist svo ástfangin þessa dagana að hún hemur sig ekki í atlotum við kærastann Jason Trawick.

Parið er nú í fríi á Hawai og eins og sjá má á myndunum eru þau afslöppuð og ánægð saman. Kyssast og faðmast, busla í sjónum og fara ekki leynt með áhuga sinn hvort á öðru.

Britney hefur komið sér í mjög gott líkamlegt form á ótrúlega skömmum tíma en haft er eftir bresku slúðurpressunni að aðeins tvær vikur hafi liðið þar til hún komst í toppform, laus við alla auka fitu og appelsínuhúð.

Kærastinn hennar, Jason Trawick, er líka í toppformi en hann er 44 ára og þar með 16 árum eldri en Britney.

Ekki er hægt að segja það sama um líkamlegt ástand fyrrum eiginmanns hennar, Kevin Federline, en hann er víst að ná nýjum ‘hæðum’ í sínum þyndgarmálum þessa dagana þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að grennast.

Britney hefur marga fjöruna sopið á undanförnum árum og ekki náð sér almenninlega á strik fyrr en eftir kynni sín af Jason sem skipulagði tónleikaferð hennar Circus á síðasta ári en með henni halaði hún inn meiri tekjum en nokkru sinni fyrr. Þrátt fyrir þetta rak hún hann sem umboðsmann sinn og framkvæmdastjóra en heldur honum sem kærasta.

Smelltu til að skoða myndir af hasarkroppunum og millaparinu Britney og Jason:

 <  4 af 5 > 

«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is