Morðið í Hafnarfirði: Hnepptur í fjögurra vikna gæsluvarðhald
Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði nú síðdegis að Gunnar Rúnar Sigurþórsson skyldi hnepptur í fjögurra vikna gæsluvarðhalds, vegna gruns um að hafa myrt Hannes Þór Helgason á heimili hins látna aðfararnótt 15. ágúst.
Verður hann því í gæsluvarðhaldi til 24. september.
„Lögð var fram krafa um fjögurra vikna gæsluvarðhald og á hana var fallist í Héraðsdómi Reykjaness. Úrskurðurinn hefur verið kærður til Hæstaréttar,“ segir frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Gunnar Rúnar var fyrst handtekinn í byrjun síðustu viku, en sleppt sólarhringi síðar. Hann þekkti unnustu Hannesar og hafði m.a. tjáð henni ást sína í myndböndum á youtube og víðar.
Hann var handtekinn að nýju í gær og var síðan gerð ítarleg húsleit á heimili hans í gærkvöld.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
