Viðskipti Mánudagur 30.08.2010 - 17:15 - Ummæli ()

Jóhannes í Bónus dregur sig alfarið úr Högum. Heldur þó þremur sérverslunum

Eftir meira en tveggja áratuga ævintýri hverfur Jóhannes Jónsson alfarið úr Bónus og öðrum rekstri Haga.

Jóhannes Jónsson, kenndur við Bónus, hefur vikið úr stjórn Haga hf. og hætt störfum og öllum afskiptum af félaginu.  Ákvæði úr samkomulagi því sem Arion banki gerði við Jóhannes Jónsson í  febrúar síðastliðnum um tilhögun á stjórnun og sölu Haga hafa verið felld úr gildi, þar með talinn forkaupsréttur hans á 10 prósenta hlutafjár í Högum.

Jóhannes kaupir úr samstæðu Haga þrjár sérvöruverslanir – Top Shop, Zara og All Saints - og hlut Haga í matvöruverslunum í Færeyjum, en hættir öllum öðrum afskiptum af verslunum Haga.

Hagar eru í söluferli hjá Arion banka og verður endanleg tilhögun þess og framkvæmd kynnt á næstunni, samkvæmt tilkynningu bankans nú fyrir kvöldið.

Arion banki og Jóhannes Jónsson hafa gert með sér samkomulag um málefni Haga. Með samkomulaginu næst nauðsynleg sátt sem er forsenda framvindu sölunnar á Högum og áframhaldandi stöðugleika í rekstri að mati bankans.

Undir samstæðu Haga falla Bónus, Hagkaup, 10-11, Útilíf, Zara, Debenhams, Topshop, Coast, Evans, Dorothy Perkins, Oasis, Karen Millen, All Saints, Day og Warehouse. Jafnframt eiga Hagar innkaupafyrirtækin Aðföng, Hýsingu, Banana og Ferskar kjötvörur. Arion banki eignaðist 95,7% hlut í Högum við  yfirtöku á eignarhaldsfélaginu 1998 í október 2009.

Í samkomulaginu felst  að Jóhannes kaupir allan eignarhlut Haga i færeyska félaginu SMS sem er 50%.  SMS rekur matvöruverslanir þar í landi en þær eru ótengdar verslunarrekstri félagsins á Íslandi og eina eign Haga utan Íslands. Þá kaupir Jóhannes sérvörubúðirnar Top Shop, Zara og All Saints, enda er það niðurstaða Arion banka að ekki sé æskilegt að selja þær með samstæðunni vegna tengsla milli eigenda viðkomandi umboða og fjölskyldu Jóhannesar.

Kaupverð þessara eigna er 1.237,5 milljónir króna sem er nokkru hærra en bókfært verðmæti þeirra á efnahagsreikningi Haga og er sanngjarnt verð að mati sérfræðinga bankans.

Má ekki fara í samkeppni við Haga en fær 90 milljóna eingreiðslu

Auk þess að falla frá forkaupsrétti eru í samkomulaginu ströng skilyrði um að Jóhannes og aðilar honum nátengdir efni ekki til samkeppni við Haga næstu 18 mánuði eftir undirritun samningsins. Gerður hefur verið 12 mánaða starfslokasamningur við Jóhannes auk þess sem hann fær 90 milljóna króna eingreiðslu við fullnaðaruppgjör á viðskiptum sínum við Arion banka. Jafnframt kaupir Jóhannes eignir á markaðsvirði; bíl, íbúð og sumarhús sem hann hefur haft til umráða.

„Þær breytingar sem felast í samkomulaginu eru að mati bankans nauðsynlegur undanfari sölunnar á Högum. Þekking Jóhannesar á rekstri Haga hefur nýst vel til að koma félaginu yfir erfiða hjalla en nú taka aðrir við og ljúka söluferlinu. Það er mat bankans að hagsmunir Jóhannesar og bankans fari  ekki lengur saman þar sem Jóhannes hefur lýst því yfir að hann hyggist bjóða í félagið í því söluferli sem nú fer af stað og því óhjákvæmilegt að gera breytingar sem setja alla fjárfesta við sama borð. Jóhannes gefur eftir 10 prósenta forkaupsrétt og samþykkir 18 mánaða samkeppnisbann,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka um samkomulagið í dag.

„Ákvarðanir um að selja sérleyfisverslanir skýrast af því að umboðin fyrir þær eru ekki föst í hendi vegna persónulegra tengsla og því ekki forsvaranlegt að selja þær með Hagasamstæðunni. Salan á 50% eignarhlut í SMS byggist á því að þar er um eign að ræða sem tilheyrir ekki starfsemi Haga hér á landi. Að auki er verið að selja þessar eignir á góðu verði fyrir Haga. Eftir standa Hagar sem söluvænlegt fyrirtæki í góðum rekstri,“ segir hann um þann þátt samkomulagsins.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is