Bruðl hjá Orkuveitunni? Rekstur eldhúss kostar 120 milljónir árlega
Eldhúsið í húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur (OR) kostaði 61 milljón í uppsetningu. Eldhúsið var sett upp árið 2003 og þremur árum síðar var bætt við innréttingum fyrir 9 milljónir til viðbótar. Rekstrarkostnaður eldhússins árið 2009 var 119,7 milljónir króna.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Blaðið segir að árið 2009 hafi rúmlega þrjú þúsund gestum boðið upp á veitingar í húsnæði OR og framreiddar 130 þúsund máltíðir fyrir starfsmenn. Þeir séu nú 623 talsins.
Sagt er að kynningarmyndband sem sýnir íburðinn í eldhúsinu hafi vakið athygli undanfarna daga. Hafi Haraldur Flosi Tryggvason, núverandi stjórnarformaður OR, sagt í samtali við Bylgjuna í gærmorgun að hann furðaði sig á því hvers vegna svona myndbönd væru yfir höfuð gerð. „Menn hafa sýnt metnað í fjárfestingum Orkuveitunnar,“ sagði Haraldur Flosi. „Við erum svolítið að sitja uppi með það.“
Alfreð Þorsteinsson, fyrrum stjórnarformaður OR, segir að húsnæðið hafi ekki verið dýrara heldur en vandað skólahúsnæði í Reykjavík og ákveðið hafi verið að vanda til hluta eins og eldhússins á sínum tíma. „Það var ekkert bruðlað sérstaklega í uppbyggingu þessa eldhúss,“ segir Alfreð. „Nýjustu tæki sem voru fáanleg voru sett upp vegna þess að það er heilmikið batterí að hafa mötuneyti fyrir svona mikinn fjölda. Ég held að það hefði þótt skrýtið ef keypt hefðu verið gömul tæki eða eitthvað drasl.“
Fréttablaðið segir að myndbandið, sem er tæpar tíu mínútur að lengd og kostaði 650 þúsund krónur í heild, hafi verið framleitt árið 2004. Samkvæmt upplýsingum Orkuveitunnar vakti eldhúsið mikla athygli á sínum tíma og sóttust fagmenn og rekstraaðilar mötuneyta mjög eftir því að koma í heimsókn og skoða það. Var myndbandið gert til að svara þessum áhuga og draga úr stöðugum heimsóknum. Myndbandið var gert í samvinnu við þá birgja sem seldu innréttingarnar og tækin og kostað mestmegnis af þeim.
OR heldur því fram að sambærileg eldhús séu í mötuneytum Alcoa – Fjarðaáls, Arion banka og Norðuráls.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is