Viðskiptablaðið: Tölvupóstar stjórnenda FL Group sýna vísvitandi ofmat eigna
Tölvupóstsamskipti milli helstu stjórnenda FL Group sýna að eignir sem settar voru inn í Northern Travel Holding (NTH) í lok árs 2006 voru vísvitandi ofmetnar til að sýna fram á blekkjandi eignarstöðu á efnahagsreikningi þeirra félaga sem að viðskiptunum komu.
Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag.
Blaðið segir að á meðal þeirra eigna sem færðar voru þangað yfir hafi verið danska flugfélagið Sterling og Iceland Express. Stjórnendurnir hafi einnig lagt mikla áherslu á að viðskiptin myndu „meika sens út á við“.
Upplýsingar Viðskiptablaðsins byggja á gögnum sem voru afrituð í ítarlegri húsleit sem starfsmenn skattrannsóknarstjóra framkvæmdu í höfuðstöðvum FL Group, sem þá hafði tekið upp nafnið Stoðir, þann 11. nóvember 2008. Þar var lagt hald á ýmiskonar bókhaldsgögn, kaupsamninga, viðskiptaáætlanir, samkomulög og aragrúi tölvupóstsamskipta afrituð. Um er að ræða hundruð blaðsíðna af trúnaðargögnum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is