Vill að KPMG hætti sem endurskoðendur Icelandair Group. Sæta sakamálarannsókn
Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta og hluthafi í Icelandair Group, hefur lagt fram tillögu um að Icelandair Group kjósi sér nýja endurskoðendur.
Frá þessu er sagt í Viðskiptablaðinu.
Blaðið hefur eftir Vilhjálmi að núverandi endurskoðendur samstæðunnar, KPMG hf., sæti nú sakamálarannsókn hjá embætti sérstaks saksóknara. Endurskoðandi á þess vegum, Jón S. Helgason, hafi á sínum tíma verið endurskoðandi FL Group.
Í tillögunni segir Vilhjálmur að Jón hafi ekki gætt hagsmuna lánveitenda FL Group á sínum tíma og telur því að rétt og eðlilegt sé að skipt verði um endurskoðendur frá með og með næsta hluthafa fundi Icelandair Group. Hann verður haldinn 15. september næstkomandi.
Fram kemur í blaðinu að Vilhjálmur sendi inn tillöguna á mánudag og vill að hún verði tekin fyrir undir liðnum „önnur mál“ á hluthafafundinum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is