Umboðsmaður skuldara aflar gagna um kyrrstöðusamninga við þekkta skuldakónga
Umboðsmaður skuldara hefur ákveðið að senda Arion banka og Landsbankanum formlega fyrirspurn um svokallaða kyrrstöðusamninga sem bankarnir hafa gert við tvo þekktustu skuldakónga landsins, Björgólf Thor Björgólfsson og Jón Ásgeir Jóhannesson. Svo virðist sem þeir njóti sérkjara sem almenningi standa ekki til boða.
Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 þar sem rætt var við Ástu Sigrúnu Helgadóttur, umboðsmann skuldara. Hún segir kyrrstöðusamninga ekki þekkjast sem úrræði í almennum bankaviðskiptum.
Fram hefur komið að í kyrrstöðusamningum felst að ekki er gengið að skuldum viðkomandi, ekki greiddir vextir af þeim og ekki höfðað mál gegn skuldurunum.
Í frétt Stöðvar 2 sagði að orðið kyrrstöðusamningur væri þýðing á enska hugtakinu „stand-still agreement.“ Sagt var að hugtakið þekktist ekki í íslenskri.
Fram kom að samkvæmt nýjum lögum um umboðsmann skuldara getur umboðsmaður óskað eftir upplýsingum hjá fyrirtækjum um öll mál og er þeim skylt að svara erindi embættisins.
„Ég sá þessa frétt og hún vekur miklar spurningar um þessi vinnubrögð. Og ég tel að þetta sé eitthvað sem þarf að skoða,“ var haft eftir Ástu Sigrúnu Helgadóttur.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is