Vel heppnuð Ljósanótt í Reykjanesbæ. Fjöldi fólks tók þátt í dag- skránni alla dagana
Dagskrá Ljósanætur í Reykjanesbæ fór vel fram og tugþúsundir bæjarbúa og gesta skemmtu sér vel þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi hamast á hátíðarsvæðinu með roki og rigningu. Dagskrá hátíðarinnar stóðst öll þrátt fyrir veður, sem fólk lét hafa lítil áhrif á sig. Eitthvað færri voru á hátíðinni í ár en undanfarin ár og er örugglega veðrinu um að kenna.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjanesbæ.
Dagskrá laugardagsins náði hápunkti með flugeldasýningu í umsjón björgunarsveitarinnar og vildi þá svo ótrúlega til að veðrið lægði rétt fyrir sýningu. Þar áður léku á stóra sviðinu Hjaltalín og Páll Óskar, Mannakorn og Ellen Kristjánsdóttir og Suðurnesjasveitin Hjálmar. Mikill fjöldi gesta fyllti miðbæinn upp úr hádegi og mettáttaka var í hinni árlegu árgangagöngu niður Hafnargötuna og að hátíðarsvæði þar sem formleg dagská hófst.
Hvert einasta rými við Hafnargötuna og í nágrenni hátíðarsvæðisins er notað fyrir listsýningar og menningarviðburði ýmiskonar. Í sölutjöldum er verið að selja handverk og á hátíðarsviði sem stóð við Ægisgötuna voru útitónleikar bæði í gærkvöldi og á föstudagskvöld. Þá var boðið upp á kjötsúpu sem þúsundir nýttu sér.
Viðbragðsaðilar voru almennt ánægðir með hvernig til tókst en fjölmennt lið bæði lögreglu, sjúkraliðs og björgunarsveitarfólks var við gæslu á hátíðinni.
Ljósanótt lýkur í dag með hátíðartónleikum í Stapa þar sem fram koma kórar og söngfólk af svæðinu ásamt hljómsveit.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is