Samningaleiðin sögð versta mögulega niðurstaðan. LÍÚ talar um breiða samstöðu

LÍÚ fagnar "breiðri samstöðu" um hina svokölluðu samningaleið, þó að engin samstaða hafi náðst í hinni svokölluðu sáttanefnd.
Landsamband íslesnkra útgerðarmanna, LÍÚ, fullyrðir að „breið samstaða“ hafi verið í hinni svokölluðu sáttanefnd um fiskveiðistjórnun um að fara samningaleið en ekki fyrningaleið í aflaheimildum. Samstaðan er þó ekki meiri en svo að ýmsir aðrir sjá ástæðu til að vekja athygli á andmælum sínum við niðurstöðuna. Þá bendir einn nefndarmanna, Finnbogi Vikar, á að með þessari samningaleið fái núverandi kvótahafar auðlindina til „eignar“ næstu 15-30 árin með framlengingar ákvæðum.
„Í starfshópnum myndaðist breið samstaða um að byggja áfram á aflamarkskerfi og fara svokallaða samningaleið. Sú leið grundvallast á samningum ríkisins og rétthafa aflaheimilda um langtíma afnotarétt og skýrum ákvæðum um framlengingu samninga,“ segir í tilkynningu frá LÍÚ í dag.
Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda, SFÚ, segja hinsvegar að ekki hafi einhugur ríkt í nefndinni og nefna þau sérstaklega eftirtalin atriði:
„SFÚ lýsti þar yfir fullum stuðningi við tilboðsleiðina sem Þorkell Helgason og Jón Steinsson kynntu;
SFÚ skoraði á stjórnvöld að leggja báðar leiðir, tilboðsleiðina og samningaleiðina, í þjóðaratkvæðagreiðslu til að ná sátt við þjóðina, eiganda auðlindarinnar;
SFÚ lagði til að enn frekari athuganir yrðu gerðar á þjóðhagslegum áhrifum beggja leiða;
SFÚ ásamt öðrum hagsmunaaðilum lagði til að allur óunninn afli verði seldur á markaði eða markaðsverð á innlendum fiskmörkuðum verði látið ráða í beinum viðskiptum;
Sömu aðilar lögðu til að í lög verði sett ákvæði um fjárhagslegan aðskilnað veiða og vinnslu þar sem óheimilt yrði, út frá samkeppnissjónarmiðum, að fénýta aflaheimildir til niðurgreiðslu á hráefni í eigin vinnslur.“
Finnbogi Vikar: Samningaleiðin versta mögulega útkoman
Fulltrúi Borgarahreyfingarinnar/Hreyfingarinnar í starfshópnum, Finnbogi Vikar, segir niðurstöðuna hina verstu sem í boði var og telur raunar að skipun sáttanefndarinnar „hafi verið mistök og illa ígrunduð vegna þess að í þessari nefnd, svokallaðri „sáttanefnd“, var hagsmunaaðilum með sína vel launuðu starfsmenn att saman og með stjórnmálafólki í einn hrærigraut til að gera tilraun um finna lausn á kvótadeilunni.“ Þá segir hann í áliti sínu:
„Samningaleiðin er versta mögulega útkoman sem nefndin getur lagt til þegar hagsmunir almennings eru hafðir í huga. Þetta er með svikayfirbragði sem felur í sér að kvótinn er í raun innkallaður og úthlutaður aftur til núverandi kvótahafa til „eignar“ næstu 15-30 árin með framlengingar ákvæðum. Þetta þýðir í raun óbreytt fiskveiðistjórnunarkerfi sem er að mati undirritaðs algjörlega óásættanleg niðurstaða fyrir almenning í þessu landi.
Niðurstaða hans er því þessi:
„Verði samningaleiðin farin mun það þýða í raun að afnota-/nýtingarréttur fiskveiðiauðlindarinnar verður í raun einkavæddur og gefinn til núverandi kvótahafa. Undirritaður getur ekki lagt nafn sitt undir svo andþjóðfélagslegan gjörning.
Starf nefndarinnar hefur eingöngu miðað að því að ná sáttum við hagsmunaaðila um nýtingu nytjastofnanna, en markmiðið hefði í raun átt að vera að ná um það sáttum við þjóðina. Undirritaður telur því að það væri í anda góðs lýðræðis að leggja tillögur nefndarinnar fyrir þjóðaratkvæði, vilji stjórnvöld raunverulega fara að vilja þjóðarinnar um það með hvaða hætti þessi stærsta sameiginlega auðlind Íslendinga er nýtt.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is