Viðskipti Þriðjudagur 07.09.2010 - 11:42 - Ummæli ()

Uppgjör Íslandsbanka bærilegt. Mikið högg ef lán í erlendri mynt dæmast ólögmæt

Árshlutauppgjör Íslandsbanka í takt við áætlanir að mestu

Fari svo að öll lán í erlendri mynt verði dæmd ólögleg mun höggið á eiginfjárgrunn Íslandsbanka verða verulegt. Fer þá eiginfjárstaða bankans úr því að vera 21,5 prósent nú í að vera um 12 prósent. Það aftur heftir möguleika bankans verulega að þjónusta fyrirtæki og heimili landsins.

Svo segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, en hálfsárs uppgjör bankans fyrir yfirstandandi ár liggur nú fyrir.

Kemur þar fram að rekstur var nokkuð í takt við áætlanir þrátt fyrir allt og var rekstrarniðurstaðan jákvæð um 8,3 milljarða króna eftir skatta. Arðsemi eigin fjár reyndist 17,1 prósent á þessum fyrri hluta ársins.

Árshlutareikningurinn hér í heild sinni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is