Laugardagur 11.09.2010 - 11:36
- Ummæli
()
Terry Richardson og Lady Gaga gera bók saman
Lady Gaga og stjörnuljósmyndarinn Terry Richardson hafa leitt hesta sína saman og gera nú bók um tónleikaferð Gaga; Monster Ball.
Terry Richardsson er einna frægastur fyrir tískuljósmyndir sínar en þær eru á köflum djafar og ögrandi ásamt því að vera sérlega stílhreinar og flottar.
Terry hefur jafnframt myndað Obama forseta og marga aðra heimsþekkta einstaklinga.
Lady Gaga segir að Terry hafi átt frumkvæði að því að gera bókina, hafi komið til sín baksviðs og sagt að hann vildi fá að mynda stjörnuna þar og setja svo í bók.
Hann tekur myndir þegar ég er að skipta um föt, þegar ég kófsveitt og alltaf þegar ég öskra á hann að drulla sér út.
Svo segir hann ‘Þetta er svo fallegt, þú ert svo mikið pönk!’… meðan ég er að pissa í tómt bjórglas á bak við svið.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
