Mánudagur 13.09.2010 - 11:16 - Ummæli ()

Launabilið breikkar milli fólks í almannaþjónustu og á almennum markaði

Félagar SFR sitja eftir í launum

Nú mælist átján prósenta munur á meðaltalslaunum starfsmanna á almennum vinnumarkaði annars vegar og starfsmanna í almannaþjónustu hins vegar samkvæmt nýrri úttekt þar að lútandi. Er dregin sú ályktun að launaskrið hafi átt sér stað á almennum markaði undanfarin misseri.

Ný launakönnun stéttarfélagsins SFR leiðir þennan mun í ljós en slíkar kannanir hefur félagið látið framkvæma fjögur ár í röð. Er miðað við sambærilegar starfsgreinar í könnuninni.

Er engum blöðum um að fletta að mismunur hefur aukist milli ára og er þá tekið tillit til ýmissa þátta á borð við kyn, aldur, starfsaldur og menntunar. Engu að síður dragi sífellt meira í sundur.

Hækkuðu heildarlaun félagsmanna VR um 4,6 prósent á liðnu ári samanborið við 1,6 prósent hjá félögum SFR.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is