Lögmaður: Skýrsla þingmannanefndar dugar ekki til ákæru. Meingölluð lög

Ýmsir lögmenn telja ófært að ákæra fyrrverandi ráðherra með þingsályktunartillögu um Landsdóm. Lög um hann séu einfaldlega handónýt og á skjön við almennar reglur réttarríkisins.
Ekki er hægt að byggja ákærur á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, enda var þar ekki um sakamálarannsókn að ræða. Það er mat Kristínar Edwald hæstaréttarlögmanns, en rætt var við hana í fréttum Ríkisútvarpsins í kvöld.
Kristín telur að lögin um Landsdóm séu svo gölluð og úrelt að þau brjóti í bága við ríkjandi viðhorf til réttarfars og mannréttinda. Lögin geri ráð fyrir því að eftir að Alþingi taki ákvörðun um ákæru sé málið fyrst rannsakað. Á því stigi hafi verið ákveðið að ákæra sé gefin út og einnig ákveðið hvaða efnisatriði séu í þeirri ákæru. Í kjölfarið kjósi Alþingi saksóknara, en hann geti hvorki dregið úr eða bætt við ákæruna. Það segi sig sjálft að ljósi þessa að rannsókn, sem fari fram eftir að ákæra sé gefin út, hljóti að beinast að því að undirbyggja þessa ákæru.
Kristín segir að meginreglan í sakamálaréttafari sé sú að það sé ekki tekin ákvörðun um ákæru fyrr en mál hafi verið rannsakað. Ákæra sé þá gefin út í kjölfar sakamálarannsóknar og einungis þegar fyrir liggi að gögn málsins og rannsóknar leiði það í ljós að það sé líklegra að sakfellt verði fyrir heldur en ekki.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is