Viðskipti Miðvikudagur 15.09.2010 - 15:47 - Ummæli ()

Aðstoðarmaður ráðherra vill nýjan stjórnmálaflokk – gegn ráðherranum

Kristrún Heimisdóttir styður stofnun nýs kvennaframboðs, jafnvel þó það yrði til höfuðs flokki ráðherrans sem hún vinnur fyrir.

Kristrún Heimisdóttir, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, styður stofnun nýs kvennaframboðs. Er það líklega í fyrsta skipti, svo vitað sé, sem aðstoðarmaður ráðherra styður leynt og ljóst stofnun stjórnmálaflokks til höfuðs ráðherra sínum.

Í gærkvöld hélt Femínistafélagið fund þar sem fjallað var um það hvort þörf væri fyrir nýtt kvennaframboð eða kvennalista. Á Facebook-síðu Kristrúnar vakti hún athygli á frétt Morgunblaðsins af fundinum, en þar var spurt í fyrirsögn: „Tími fyrir nýtt kvennaframboð?“ og svarar Kristrún þeirri spurningu játandi:

„Já. Lífið á tímum kvenfórna, undirmála, hrossakaupa og mafískra valdabandalaga kennir manni að íslensk flokkspólitík hefur aldrei legið jafn lágt og nú.“

Nokkrar umræður sköpuðust á síðu Kristrúnar. Ein fésbókarvinkona hennar taldi ekki þörf á nýju kvennaframboði og benti á að ekki vanti konur í áhrifastöðum í Samfylkingunni, flokknum væri í raun stjórnað af konum, og að VG væri hinn mesti kvenfrelsisflokkur. Þessu svarar Kristrún þannig:

„Konur verða að geta skilið pólitískt við menn sína ef á þarf að halda.“

Aftur fær hún svar frá vinkonunni, sem telur þessi ummæli vera „kvenfyrirlitningu af alvarlegustu sort.“ Fer hún fram á að Kristrún biðji sig afsökunar, því konur geti „hugsað og tjáð sig sjálfstætt og þó þær séu giftar.“

Aðstoðarmaðurinn gegn ráðherranum

Ljóst má vera að Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, yrði ekki í framboði fyrir nýtt kvennaframboð og því vekur athygli að aðstoðarmaður hans styðji kvennaframboð jafn afdráttarlaust, enda yrði það augljóslega gegn öðrum stjórnmálaflokkum, ekki síst flokki ráðherrans.

Hingað til hefur eitt af hlutverkum aðstoðarmanna ráðherra verið að enduróma þeirra stefnu og málflutning, en erfitt er að sjá að þarna fari fram hagsmunir ráðherrans og aðstoðarmannsins.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is