Sveinn Andri segir skjólstæðing sinn alfarið lausan við kynþátta- fordóma

Lögmaður segir skjólstæðing sinn fórnarlamb lélegrar fjölmiðlunar
Þó rannsókn lögreglu taki af allan vafa um að lögreglan telur að um kynþáttahatur hafi verið um að ræða þegar tveir kúbverskir feðgar flúðu land í vikunni vísar lögmaður Jóns Hilmars Hallgrímssonar, þess er grunaður er um athæfið, því alfarið á bug. Skjólstæðingur hans sé alfarið laus við alla fordóma.
Lögregla hefur lokið rannsókn sinni vegna málsins og sat Jón í gæsluvarðhaldi vegna þess um tíma. Hefur hann komist í kast við lögin áður vegna handrukkana og er grunaður um líflátshótanir í garð feðganna kúbversku.
Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður mannsins, segir fráleitt að um kynþáttahatur hafi verið um að ræða. Það sé aðeins útgáfa óvandaðra fjölmiðla.
Tildrög málsins séu erjur milli hópa ungmenna og hafi Jón tekið að sér að ganga á milli og vonaðist hann aðeins til að stilla til friðar. Tókst það ekki.
Segir Sveinn að ásakanir um skemmdarverk eigi alls ekki við um Jón. Tvívegis hafi slíkt gerst í þessu máli en Jón hvergi nærri í þeim tilvikum. Hann hafi heldur aldrei hótað feðgunum eins og ýjað sé að.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is