Birgitta Jónsdóttir: Enginn vill gangast við ábyrgð vegna hrunsins

Birgitta segir engan gangast við ábyrgð
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, segir engan vilja gangast við ábyrgð vegna hrunsins sem hér varð 2008. Spurði hún þingheim í dag hvort það væri til þess fallið að auka virðingu þingsins að þar sitji enn fólk sem sæti átti í hrunstjórninni sem svo er kölluð.
Sitt sýnist hverjum um ákærur á hendur þeim ráðherrum er sátu vaktina fyrir þjóðina í aðdraganda bankahrunsins og skiptar skoðanir meðal þingmanna eins og annarra. Enn er rætt um ákærur og grundvöll fyrir þeim á þinginu og alls óljóst hvenær þeirri umræðu lýkur.
Óskaði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, eftir dæmum um til hvaða bragðs nákvæmlega umræddir ráðherrar, sem mögulega fá á sig ákærur, hefðu átt að grípa til að forða því sem hér gerðist. Sagðist Bjarni ekki hafa heyrt eitt einasta slíkt dæmi.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is