Garðabær: Ólíklegt að sameining við Álftanes yrði samþykkt af íbúum

Sameining nú yrði líklega felld af íbúum
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, telur afar ólíklegt að íbúar bæjarfélagsins kjósi sameiningu við Álftanes yrði slík könnun gerð í dag. Er hann ekki of bjartsýnn á sameiningu en nefndir bæjarfélaganna tveggja hafa um tíma fundað um málið.
Segir Gunnar í samtali við fréttastofu RÚV að landfræðileg og menningarleg rök séu sannarlega fyrir hendi varðandi sameiningu en fleira þurfi að koma til að hans mati. Þar ráði helst að rekstrargrundvöllur sé fyrir hendi og sé hann ekki jákvæður sé áhugi Garðabæjar á sameiningu takmarkaður. Þá sé ljóst að ríkið þurfi með einhverjum hætti að koma að málum því íbúar Garðabæjar eigi ekki að axla stórauknar byrðar vegna slíkrar sameiningar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is