Þingsályktunartillaga um Landsdóm vísað aftur í nefndina. Ekki í allsherjarnefnd
Fyrstu umræðu um þingsályktunartillögu fimm nefndarmanna í þingmannanefnd um bankahrunið er lokið og var tillögunni vísað aftur til þingmannanefndarinnar nú um ellefu leytið. Harðar deilur voru í þingsal Alþingis um það hvaða nefnd ætti að vinna málið áfram.
Tvær tillögur voru um afdrif tillögunnar, en Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, lagði til að þingsályktunartillagan færi næst til allsherjarnefndar en ekki aftur í þingmannanefndina. Nokkrir þingmenn sjálfstæðismanna tóku til máls og töldu fráleitt að þingmannanefndin tæki aftur við málinu. Sögðu þeir nefndina þegar hafa kveðið upp hug sinn og því væru engar líkur á að hún tæki athugasemdir, sem fram hafa komið síðustu daga, til greina.
Árni Þór Sigurðsson, starfandi þingflokksformaður Vinstri grænna, mótmælti þessu og sagði að ef málið yrði tekið af þingmannanefndinni væri það vantraust á þingmannanefndina og hennar störf.
Þessu mótmæltu sjálfstæðismenn hástöfum og sögðu málið ekki snúast um vantraust á nefndina.
„En það verður bara að hafa það ef formaður þingmannanefndarinnar, Atli Gíslason, lítur svo á,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Niðurstaðan varð svo sú, að 38 þingmenn greiddu atkvæði með því að vísa málinu aftur til þingmannanefndarinnar, en 16 þingmenn Sjálfstæðisflokksins voru á móti. Tveir greiddu ekki atkvæði, þeir Róbert Marshall og Kristján Möller, en þeir töldu að báðar nefndir ættu að fá málið og því ætti önnur tillagan ekki að útiloka hina.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
