Fimmtudagur 23.09.2010 - 18:56 - Ummæli ()

Alþjóðleg kvikmyndahátíð sett í Reykjavík í kvöld. Sú stærsta hingað til

Bandaríski leikstjórinn Jim Jarmusch er heiðursgestur RIFF í ár og verða þrjár mynda hans sýndar á hátíðinni.

Alþjóðleg kvikmyndahátíð hefst í Reykjavík í kvöld, sú sjöunda í röðinni, en hún hefur verið haldin árlega frá árinu 2004. Hátíðin í ár er umfangsmeiri en nokkru sinni og raunar stærsta kvikmyndahátíð sem haldin hefur verið á Íslandi.

Kvikmyndahátíðin heitir uppá enska tungu Reykjavík International Film Festival og hefur náð talsverðri fótfestu undir þeirri skammstöfun, eða RIFF.

Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, setur hátíðina klukkan 20 í kvöld í Þjóðleikhúsinu og er þetta í fyrsta skipti sem leikhúsið er vettvangur kvikmyndasýningar af þessu tagi. Þar ættu þó að vera kjöraðstæður fyrir kvikmyndasýningar, því Guðjón Samúelsson hannaði húsið með slíkt í huga.

Hátíðin stendur í ellefu daga og verða sýndar hvorki fleiri né færri en 140 myndir á þeim tíma, þar af 20 íslenskar myndir. Sýningarstaðir eru fjölmargir, en flestar myndanna verða þó sýndar í hinu nýja Bíó Paradís (gamla Regnboganum) og í Háskólabíói. Auk þess verða sérstakar sýningar í Norræna húsinu, Hafnarhúsinu, Iðnó og í Tjarnarbíói.

Upplýsingar og dagsrká má sjá á vef hátíðarinnar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is