Fimmtudagur 23.09.2010 - 17:45 - Ummæli ()

Forseti Alþingis svarar ekki óskum um umfjöllun mikilvægra mála á þingi

Ásta Ragnheiður sýnir því ekki áhuga að taka upp önnur mál þessa dagana

Forseti Alþingis, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, hefur í engu svarað ósk Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, þar sem sú síðarnefnda biður þess að forseti setji á dagskrá Alþingis aðkallandi mál eins og dóm Hæstaréttar, niðurstöðu Magma nefndarinnar auk  fleiri mála sem á þjóðinni brenna.

Fór Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fram á hið sama í gær en án árangurs.

Sendi Ragnheiður Elín forsetanum bréf í morgun þar sem bent var á að allur tími þingsins nú færi eingöngu í umræður um þingmannanefndina og niðurstöður hennar. Á meðan biði fjöldi brýnna mála sem Alþingi þyrfti að taka afstöðu til.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is