Þorbjörg Helga: Besti og Samfylking að tryggja sínu fólki betri laun

Hækkanir til að gera vel við sína
Sú aðgerð meirihlutans í Reykjavíkurborg að hækka laun varaborgarfulltrúa á sér einfaldar skýringar að mati Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur, fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Þessi hækkun hefur legið í loftinu alllengi eða síðan í ljós kom hvernig Besti flokkurinn og Samfylkingin skiptu með sér embættum.
Fer Þorbjörg yfir málið eins og hún sér það í nýjasta Eyjupistli sínum og fer ekki í felum með skoðanir sínar á þeim gjörningi nú þegar almenn kjaraskerðing leggst yfir aðra.
Fyrsti varaborgarfulltrúi Besta flokksins, Páll Hjaltason, var skipaður formaður skipulagsráðs. Það embætti skipar jafnan borgarfulltrúi úr einum af efstu sætum síns flokks, enda viðamikið embætti. Fyrsti varaborgarfulltrúi Samfylkingar, Hjálmar Sveinsson, sagði strax eftir að niðurstöður kosninga til borgarstjórnar lágu fyrir og ljóst var að hann næði ekki inn sem aðalmaður, að hann þyrfti frekari upplýsingar áður en hann ákvæði að taka sæti sitt um „til dæmis hvort þetta er launað, það skiptir fjölskyldumann miklu máli“.
Launahækkanir Besta flokksins og Samfylkingar fyrir fyrstu varamenn svara spurningu Hjálmars og tryggja Páli Hjaltasyni betri laun fyrir sína vinnu. Þetta hækkar launakostnað borgar- og varaborgarfulltrúa á tíma þegar stíf krafa er um aðhald í kostnaði og launum. Slík vinnubrögð eru einfaldlega ekki boðleg.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is