Viðskipti Laugardagur 25.09.2010 - 11:39 - Ummæli ()

Segir gagnrýni á íslenska endur- skoðendur byggða á hreinum getgátum

Gagnrýni á störf endurskoðenda styðst ekki við nein rök

Öll sú gagnrýni sem fram hefur komið á þátt endurskoðenda í aðdraganda hrunsins hér á landi er ekki byggð á öðru en hreinum getgátum segir Þórir Ólafsson, formaður Félags löggiltra endurskoðenda. Rannsóknaraðilar á borð við Rannsóknarnefnd Alþingis hafi ekki aðgang að vinnugögnum endurskoðenda og því viti menn ekkert um staðreyndir málsins.

Svo hljóðaði innihald ræðu hans á afmælisþingi félagsins í gær en Morgunblaðið fjallar um samkomuna. Fékk félagið formann Alþjóðasambands endurskoðanda, Göran Tidström, til ræðuhalda og tók hann undir með íslenskum kollegum sínum og sagði ekki þeim að kenna hvernig hér fór. Sá sagði hins vegar að greinin hefði ekki staðið undir þeim væntingum sem til hennar voru gerðar.

Vísaði Þórir allri gagnrýni á bug og vísaði til þess að endurskoðendur séu bundnir trúnaði varðandi öll vinnugögn sín en að þau gögn hljóti að vera undirstaðan eigi að gagnrýni stéttina. „Þetta er bara sú staða sem við lifum við. Við höfum opinn aðgang að nánast öllum trúnaðarupplýsingum fyrirtækja, en endurskoðendur geta ekki farið með þær út á markaðinn til þess eins að rétta af umræðu sem þeim þykir ósanngjörn.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is