Laugardagur 25.09.2010 - 10:51 - Ummæli ()

Starfshópur mælir með sex nýjum leiðum til frekari skattlagningar

Kafa má dýpra í vasa skattgreiðenda að mati starfshóps

Hækka skal fjármagnstekju- og tekjuskatt fyrirtækja, leggja enn hærri gjöld á tóbak og áfengi auk þess sem erfðafjár- og auðlegarskattar geta hækkað nokkuð frá því sem nú er. Þetta er meðal tillagna starfshóps fjármálaráðherra sem koma átti með nýjar hugmyndir um hugsanlega frekari skattheimtu.

Vefmiðillinn Svipan skýrir frá skýrslu hópsins sem Steingrímur J. Sigfússon, fer nú yfir ásamt sínu fólki. Mælt er með sex nýjum skattleiðum fyrir ríkið frá því sem nú er.

Þyngst vegur sennilega tveggja prósenta frekari hækkun á fjármagnstekju- og tekjuskatti fyrirtækja en sá skattur getur verið 20 prósent í stað 18 nú.

Lögð er til frekari hækkun á auðlegðarskatti gagnvart hjónum sem eiga meira en 120 milljónir og einstaklingum sem eiga meira en 90 milljónir. Þá skal erfðafjárskattur hækka um fimm prósent; úr 5 í 10 prósent.

Hópurinn telur auðvelt að leggja enn frekari álögur á tóbak og jafnvel áfengi líka en fara verði þó varlegar í áfengishækkun. Þá bendir hópurinn á að auðvelt sé að fella niður undanþágur frá vörugjöldum á þessum vörum í fríhöfnum landsins.

Óhætt er einnig að leggja frekar á kolefnisgjald á fljótandi eldsneyti að mati hópsins og bankaskattur er ekki fráleitur heldur. Sá myndi leggjast á efnahagsreikning bankanna að frádregnum innistæðum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is