Mánudagur 27.09.2010 - 15:19 - Ummæli ()

Stjórn Lífeyrissjóðs verkfræðinga hættir. Þriðjungur eigna tapaður

Stór mínus hjá Lífeyrissjóði verkfræðinga. Stjórnin fór frá

Öll stjórn Lífeyrissjóðs verkfræðinga hefur tekið pokann sinn eftir að vantrauststillaga var samþykkt á stjórnina. Hrapalleg stjórn á sjóðnum hefur kostnað eigendurna um þriðjung eigna sjóðsins en sjóðurinn tapaði 16,2 milljörðum króna í bankahruninu.

Morgunblaðið fjallar um málið en þrátt fyrir mikil köll víða úr þjóðfélaginu þess efnis að stjórnir og stjórar lífeyrissjóðanna íslensku sem töpuðu háum fjárhæðum sjóðsfélaga á einu bretti við bankahrunið taki pokann sinn hefur lítið orðið úr fyrr en nú.

Að gefinni 3,5 prósenta ávöxtun hafi eigið fé sjóðsins átt að standa í tæpum 43 milljörðum króna í árslok 2009 en ársreikningur það ár sýndi að eigið féð var verulega mikið minna eða rúmlega 28 milljarðar króna.

Sjóðurinn hefur þegar skert réttindi sjóðsfélaga sinna um 10 prósent en það er nánast dropi í hafið því enn vantar 30 prósent upp á að sjóðurinn dugi til greiðslu skuldbindinga sinna. Frekari skerðing er því óumflýjanleg.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is