Viðskipti Fimmtudagur 30.09.2010 - 07:26 - Ummæli ()

Atli undrast reiði sjálfstæðismanna. Bjóst ekki við ákærum. Segir undirmál á Alþingi

Atli segir engu líkara en að sjálfstæðismenn hafi verið búnir að semja um aðra niðurstöðu og því reiðist þeir nú.

Atli Gíslason, formaður þingmannanefndar um bankahrunið, undrast reiði sjálfstæðismanna vegna ákærunnar á hendur Geir H. Haarde og segir hana vekja upp spurningar hvort búið hafi verið að semja um aðra niðurstöðu fyrirfram.

„Ég átti satt best að segja von á því að allar tillögurnar yrðu felldar, þótt ég hafi rennt grun í á mánudegi og þriðjudegi að það myndu skipast veður í lofti með Geir vegna einhverra undirmála sem ég skynjaði en festi ekki hönd á. En svo gerðist það ekki og þá urðu sjálfstæðismenn ótrúlega reiðir, og ég spyr mig: Af hverju urðu þeir svona reiðir? Áttu þeir von á annarri niðurstöðu? Var búið að víla og díla um eitthvað annað? Þessi ótrúlega reiði kom mér á óvart. Þeir töluðu eins og einhverjir hefðu hlaupið frá borði í einhverju samkomulagi,“ segir Atli í Fréttablaðinu í dag.

Spurður hvort honum þyki réttlátt að Geir sé einn dreginn fyrir landsdóm segir Atli: „Ég hugsaði einhvern tíma með sjálfum mér: Fjórir, enginn eða einn. Það er algengt í sakamálum að aðalmaður sé ákærður en aðrir ekki, án þess að ég vilji heimfæra það beint yfir á þetta,“ segir hann.

Ráðherrar úr stjórn Geirs réðu úrslitum

„Það er mér afar mikið umhugsunarefni að sjö ráðherrar úr svonefndri hrunstjórn, sem ýmist eru ráðherrar núna eða venjulegir þingmenn, greiddu allir atkvæði gegn málshöfðun. Órofa og einlæg samstaða þeirra réð úrslitum um niðurstöðuna. Ég hefði sjálfur talið eðlilegt, miðað við óskráðar reglur um hæfi og önnur gildi sem ég hef tamið mér sem lögmaður, að þau kölluðu inn varamenn eða sætu hjá.“

Atli segir ummæli Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um störf hans og nefndarinnar ómakleg.

„Ég þoli alveg að það sé hraunað yfir mig en ég er ekki sérstaklega hress þegar það er verið að hrauna yfir þá sem hafa verið að vinna fyrir nefndina, sérfræðinga og aðra.“

Alþingi er ekki dómstóll

Atli segir í Morgunblaðinu ekki gera sér grein fyrir hvort Geir verður sakfelldur. „Niðurstaða okkar byggist bara á því að það sem fram er komið er nægilegt og líklegt til sakfellis,“ segir Atli en áréttar að Alþingi er ekki dómstóll.

Enn er óráðið hver verður kosinn saksóknari í málinu en Atli hyggst gefa kost á sér í þingmannanefnd sem verður honum til aðstoðar og fylgist með málinu. Ef í ljós kemur við meðferð málsins að ekki séu efni til að sakfella Geir Haarde kveðst Atli ætla að mæla fyrir tillögu þess efnis að ákæran verði dregin til baka.

„Ef það kemur í ljós við þessa sönnunarfærslu þá finnst mér það bara eðlilegt og heiðarlegt.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is